Íbúðaeignir fasteignasala kynnir til sölu 101,6 fm íbúð þar af bílskúr sem er 18,5 fm og geymsla 3,4 fm. Íbúðin er á 1 hæð en gengið er upp einn pall. Íbúðin er skráð 3. herbergja en búið er að opna á milli stofu og herbergis og því um eina stóra stofu að ræða, lítið mál væri að setja upp annað svefnherbergi aftur. Íbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis í 108 Reykjavík.
Eigninni fylgir stór sameiginlegur garður.Nánari lýsing: Gengið er inní flísalagt
hol, þaðan er innangengt í eftirfarandi:
Eldhús er með dúk á gólfi og snyrtilegri viðar innréttingu.
Stofan er stór og björt með parket á gólfi þaðan er gengið út á góðar svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél.
Búið er að setja upp litla
geymslu við hlið baðherbergis.
í
kjallara er sér
geymsla og sameiginleg
hjóla og vagnageymsla ásamt
þvottahúsi.Bílskúr er 18,5 fm af birtri stærð
Íbúðin er vel staðsett þar sem afar stutt er í alla þjónustu þ.e.a.s grunnskóla og menntaskóla bæði Versló og MH. Læknavaktin, krónann, bakarí og fleira er rétt hinu megin við götuna í Austurveri.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Evert Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma:
823 3022 eða í netfangið:
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu kr. 55.000.- auk vsk.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
-Lántökugjald vegna veðlána, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.