Íbúðaeignir kynna til sölu: Sjarmerandi 2ja - 3ja herbergja íbúð í risi í góðu húsi við Garðastræti. Staðsetning mjög góð.
Skv. skráningu er Íbúðin 62 fm en gólfflötur íbúðarinnar er þó meiri þar sem hluti hennar er undir súð. Frábært útsýni. Nánari lýsing.Inngangur í íbúðina er á stigapalli á fjórðu hæð. Þar er flísalögð forstofa og flísalagður stigi upp í risið.
Eldhús og
stofa í opnu rými. Nýleg innrétting, nýleg eldavél, ísskápur og uppþvottavél fylgir. Flísar á gólfi.
Búr inn af eldhúsi.
Svefnherbergi með fataskáp. Nýlegt parket á gólfi.
Svalir út frá herberginu.
Flísalagt
baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði.
Geymsla/aukaherbergi með tveimur þakgluggum, ekki full lofthæð.
Lítil
geymsla og auk þess er víða geymslupláss og skápar undir súð. Í kjallara er
sérgeymsla.
Við hlið hússins er læst port/húsasund þar sem hægt er að geyma t.d. reiðhjól.
Nánari upplýsingar veita:
Evert Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 823-3022 eða [email protected]Íbúðaeignir - við hjálpum þér að komast heim
- við vinnum fyrir þig
- traust og ábyrg þjónusta er allra hagur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900- með vsk.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 18.600.- með vsk.
-Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.